Reykjavíkurborg logo

Aðstoðarleikskólastjóri

Reykjavíkurborg

Posted about 11 hours ago

About this role

Full Time Mid-level Aðstoðarleikskólastjóri at Reykjavíkurborg in Rauðhóll. Apply directly through the link below.

At a glance

Work mode
Office
Employment
Full Time
Location
Rauðhóll
Experience
Mid-level

Core stack

  • R

Quick answers

  • What skills are required?

    R.

Reykjavíkurborg is hiring for this role. Visit career page

Reykjavík, Iceland

Leikskólinn er 10 deilda leikskóli þar sem starfa hátt í 80 starfsmenn með margvíslega menntun og reynslu. Starfstöðvar leikskólans eru þrjár, Litir v/Sandavað 7 þar sem yngstu börnin hefja leikskóla, Ævintýri v/Árvað 3 þar sem tveir elstu árgangar leikskólans eru við leik og störf og Skógarhúsið í Björnslundi v/Elliðabraut 26 þar sem börnin fá öll tækifæri til fjölbreytni í útinámi.

Rauðhóll hefur vaxið jafnt og þétt í þau 19 ár sem hann hefur verið starfræktur. Umhyggja, gleði, húmor og samkennd einkennir starfsandann. Þar er lögð ríka áherslu á símenntun og starfsfólk fær tækifæri til að nýta eigin styrkleika þannig að það nái að blómstra í starfi. Þetta skilar sér í framúrskarandi leikskólastarfi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og fagleg forysta í samstarfi við leikskólastjóra.
  • Þátttaka í mótun og framkvæmd stefnu leikskólans.
  • Skipulagning og eftirfylgni með starfi deilda.
  • Samskipti við foreldra, starfsmenn og aðra samstarfsaðila.
  • Þátttaka í ráðningum og starfsþróun starfsfólks.
  • Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
  • Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Farsæl reynsla af starfi í leikskóla.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Leiðtogahæfni og skipulagsfærni.
  • Góð hæfni í samskiptum.
  • Áhugi á þróun skólastarfs í skapandi námsumhverfi.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslends vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Um er að ræða 100% stöðu og verður ráðið ótímabundið.

Starfið er laust frá 1. apríl 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagbjört Svava Jónsdóttir, leikskólastjóri í Rauðhól, í tölvupósti Dagbjort.Svava.Jonsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-7650.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Job details

Workplace

Office

Location

Rauðhóll

Job type

Full Time

Experience

Mid-level

Similar

Company

Jobr Assistant extension

Get the extension →