
About this role
Full Time Lundarskóli: Sérkennari in AI at Akureyrarbær in Lundarskóli. Apply directly through the link below.
At a glance
- Work mode
- Office
- Employment
- Full Time
- Location
- Lundarskóli
Core stack
- R
Quick answers
What skills are required?
R.
Akureyrarbær is hiring for this role. Visit career page
Lundarskóli, Iceland
Við Lundarskóla er laus til umsóknar 100% staða sérkennara á eldra stigi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu frá og með 1. ágúst 2026.
Leitað er að einstaklingi með metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Lundarskóli er staðsettur við Dalsbraut og er fjöldi nemenda um 485 og 95 starfsmenn. Í skólanum er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is/
Starfssvið:
- Er hluti af stoðteymi skólans ásamt sérkennurum, þroskaþjálfa, námsráðgjafa og ÍSAT kennara
- Sinnir sérkennslu og heldur utan um nám nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi í samvinnu við umsjónarkennara og tekur þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi
- Aðstoðar umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa
- Veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn
- Útbýr kennslugögn í samræmi við þarfir einstakra nemanda.
- Sækir teymisfundi vegna nemenda og er teymisstjóri í nemendamálum skv. samkomulagi við deildarstjóra stoðþjónustu
- Tekur þátt í þróunarstarfi stoðþjónustu skólans
- Starfar undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans
- Ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra
- Sérkennari fylgir stefnu skólans í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Framhaldsnám á svið sérkennslu er æskilegt
- Reynsla af kennslu og/eða sambærilegu starfi með börnum og unglingum æskileg
- Réttindanám í LOGOS er æskilegt
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
- Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum og unglingum
- Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja stefnu og sýn skólans
- Frumkvæði og samstarfsvilji
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi
- Reglusemi og samviskusemi
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda, menntun, starfsreynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi náms- og starfsráðgjafa.
Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjenda og sýn þeirra á starfið.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar:launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Maríanna Ragnarsdóttir skólastjóri í netfangi marianna@akmennt.is eða í síma 4624888.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2026.