Sérfræðingur í mannauðsmálum | HR Business Partner
Sóltún.com
Office
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Full Time
Við hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum sérfræðingi á mannauðssvið til að styrkja okkar öfluga teymi og að takast á við daglegan rekstur mannauðstengdra verkefna. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á mannauðsmálum og að þrífast í uppbyggingu og þróun á þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Við leggjum áherslu á jákvætt og styðjandi vinnuumhverfi þar sem fagmennska og þróun skipta máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
- Ráðningar
- Þátttaka í fræðslumálum og viðburðum
- Þátttaka í verkefnum sem tengjast þróun og innleiðingu nýrra mannauðslausna
- Virk þátttaka í uppbyggingu mannauðsmála og önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði.
- Þekking á helstu mannauðslausnum (t.d. ráðningakerfi, fræðslukerfi) er æskileg.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði mannauðsstjórnunar, viðskiptafræði eða sálfræði.
- Frábær samskiptafærni, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Opið vinnurými
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Velferðartorg
Nánari upplýsingar á mannaudur@soltun.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Sóltún heilbrigðisþjónusta
