Umhverfis- og mannvirkjasvið: Verkefnastjóri mælinga og eftirlits
Akureyrarbær.com
Office
UMSA
Full Time
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra í mælingar og eftirlit, í tímabundna afleysingu í eitt ár.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.
Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.
Helstu Verkefni Og áByrgð:
- Mælingar fyrir m.a. byggingum, lóðum, götum og stígum og úrvinnsla.
- Hönnunarverkefni vegna framkvæmda við götur, stíga og bifreiðastæði ofl.
- Eftirlit og umsjón með verklegum framkvæmdum.
- Umsjón með umferðar-, hljóð- og hraðamælingum.
Menntunar- Og/EðA HæFniskröFur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun í verk- eða tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Sérhæfing í mælingarhugbúnaði.
- Starfinu fylgja mikil samskipti við íbúa bæjarins, hönnuði verktaka og starfsmenn Umhverfismiðstöðvar. Það krefst lipurðar í mannlegum samskiptum og frumkvæðis, einnig skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
- Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, góð framkoma, hæfni í samningaumleitunum og góð þjónustulund er nauðsynleg.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
- Trúnaður og þagnarskylda.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja ítarlegt yfirlit yfir starfsferil og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda, menntun og starfsreynslu ásamt greinargóðum upplýsingum um verkefni sem hafa tilvísun í starfið.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
ViðKomandi StéTtarféLags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Árni í gegnum netfangið haukurarni@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2025.
Umhverfis- og mannvirkjasvið: Verkefnastjóri mælinga og eftirlits
Office
UMSA
Full Time
September 25, 2025
