company logo

Umhverfis- og mannvirkjasvið: Verkefnastjóri nýframkvæmda fasteigna og mannvirkja

Akureyrarbær.com

Office

UMSA

Full Time

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja. Um 100% framtíðarstarf er að ræða. 

Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.

Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.

Helstu Verkefni Og áByrgð:

  • Umsjón með nýframkvæmdum, endurbótum fasteigna og annarra mannvirkja.
  • Gerð nýframkvæmdaáætlana.
  • Umsjón með útboðsferli hönnunar og framkvæmdaverkefna.
  • Stýring og eftirlit með framkvæmdum.
  • Þátttaka í þróun á stöðluðum/bestu lausnum á sviði framkvæmda.

Menntunar- Og/EðA HæFniskröFur:

  • Gerð er krafa um háskólapróf í verk-, tækni- eða byggingarfræði eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Meistaragráða er kostur.
  • Farsæl reynsla af verkefnastjórnun á hönnunar- og/eða framkvæmdastigi.
  • Fagleg þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar. Vottun sem verkefnastjóri er kostur.
  • Þekking á hönnunarferli og reynsla af hönnunarrýni.
  • Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
  • Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og 

ViðKomandi StéTtarféLags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Sigtryggsdóttir í gegnum netfangið dora@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025.

Umhverfis- og mannvirkjasvið: Verkefnastjóri nýframkvæmda fasteigna og mannvirkja

Office

UMSA

Full Time

August 22, 2025

company logo

Akureyrarbær