Umhverfis- og mannvirkjasvið: Forstöðumaður umhverfis- og sorpmála
Akureyrarbær.com
Office
UMSA
Full Time
Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns umhverfis- og sorpmála á umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar.
Um er að ræða 100% ótímabundna stöðu.
Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.
Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.
Helstu Verkefni Eru:
- Stjórnun og samræming verkefna á sviði umhverfis- og sorpmála
- Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstri umhverfis- og sorpmála
- Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og starfsmannahald
- Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sína deild
- Stefnumótun og þróunarvinna á deildinni
- Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila
Menntunar- Og/EðA HæFniskröFur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynslu á sviði umhverfis- og sorpmála ásamt framhaldsgráðu.
- Gerð er krafa um a.m.k. 5 ára starfsreynslu innan starfssviðsins og við verkefnastjórnun.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Starfinu fylgja mikil samskipti við deildir bæjarins, hönnuði, verktaka og notendur. Það krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
- Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, góð framkoma, hæfni í samningaumleitunum og góð þjónustulund er nauðsynleg.
- Trúnaður og þagnarskylda.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi BHM félags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Sigtryggsdóttir í gegnum netfangið dora@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025.
Umhverfis- og mannvirkjasvið: Forstöðumaður umhverfis- og sorpmála
Office
UMSA
Full Time
August 22, 2025
