company logo

Umhverfis- og mannvirkjasvið: Forstöðumaður nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga

Akureyrarbær.com

Office

UMSA

Full Time

Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga á umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar.

Um er að ræða 100% stöðu sem er ótímabundin.

Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.

Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.

Helstu Verkefni Eru:

  • Stjórnun og samræming verkefna á sviði nýframkvæmda, endurbóta og viðhalds gatna og stíga.
  • Stjórnun og samræming á verkefnum umferðar- og gatnalýsingar ásamt umferðaröryggismálum og umferðamerkingum.
  • Stjórnun á framkvæmdum og rekstri bifreiðastæðasjóðs.
  • Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og starfsmannahald.
  • Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sína deild.
  • Stefnumótun og þróunarvinna á deildinni.
  • Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila.

Menntunar- Og HæFniskröFur:

  • Gerð er krafa um háskólapróf (BA/BS) í byggingartæknifræði, byggingarfræði, byggingarverkfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
  • Menntun á framhaldsstigi er krafist, sérsvið í gatna- og umferðarmálum kostur.
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum á viðkomandi starfssviði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
  • Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði.
  • Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og þekking á teikniforritum.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja ítarlegt yfirlit yfir starfsferil og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda, menntun og starfsreynslu ásamt greinargóðum upplýsingum um verkefni sem hafa tilvísun í starfið.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkfræðingafélags Íslands.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Sif Siggtryggsdóttir, forstöðumaður í gegnum netfangið dora@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025.

Umhverfis- og mannvirkjasvið: Forstöðumaður nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga

Office

UMSA

Full Time

August 22, 2025

company logo

Akureyrarbær