
About this role
Full Time Entry-level Sumarstarf í endurhæfingardeild - Hrafnista Laugarási at Hrafnista in Hrafnista Laugarás. Apply directly through the link below.
At a glance
- Work mode
- Office
- Employment
- Full Time
- Location
- Hrafnista Laugarás
- Experience
- Entry-level
Core stack
- R
Quick answers
What skills are required?
R.
Hrafnista is hiring for this role. Visit career page
Hrafnista Laugarás, Iceland
Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða áhugasaman einstakling til starfa á endurhæfingardeild heimilisins í 70-100% starf. Leitað er að nemum í iðjuþjálfun, tómstunda- og félagsmálafræði, félagsráðgjöf, þroskaþjálfafræðum eða öðrum skyldum greinum.
Um er að ræða spennandi starf í nýrri endurhæfingardeild sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild. Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni.
Á Hrafnistu Laugarási búa tæplega 200 íbúar og auk þess koma um 50 manns í dagendurhæfingu í hverri viku. Starfið veitir því dýrmæta og fjölbreytta reynslu í lifandi og faglegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoða iðjuþjálfa
- Aðstoða við endurhæfingu íbúa
- Framfylgja þjálfunaráætlun íbúa
- Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa við handverk og félagsstarf
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stundar nám í iðjuþjálfun, tómstunda- og félagsmálafræði, þroskaþjálfun, félagsráðgjöf eða öðrum skyldum greinum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Strætóstyrkur
- Heilsuræktarstyrkur
- Mötuneyti
- Fjölskylduvænt og sveigjanlegt starfsumhverfi
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri (gigja.thordardottir@hrafnista.is)