
About this role
Full Time Stuðningsfulltrúi á skammtímadvöl fyrir fötluð börn in machine learning at Reykjavíkurborg in Skammtímadvöl Árland 9. Apply directly through the link below.
At a glance
- Work mode
- Office
- Employment
- Full Time
- Location
- Skammtímadvöl Árland 9
Core stack
- R
Quick answers
What skills are required?
R.
Reykjavíkurborg is hiring for this role. Visit career page
Skammtímadvöl Árland 9, Iceland
Í Árlandi 9 er veitt sólarhringsþjónusta þar sem fjögur ungmenni dvelja á staðnum aðra hverja viku. Mikil áhersla er lögð á á hlýlegt og heimilislegt umhverfi. Stuðningsfulltrúi vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf fljótlega og er starfshlutfall 70-90 %, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, nætur og helgarvöktum.
Skammtímadvölin í Árlandi hlaut á dögunum viðurkenningar í könnuninni Stofnun ársins og var í þriðja sæti í flokki millistórra starfsstaða, hástökkvari ársins og fyrirmyndarstarfsstaður.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs og allt sem við kemur heimilishaldi og sjálfshjálp.
- Sinnir umönnun og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og aðstoðar þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
- Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
- Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
- Tekur þátt í fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.
- Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Bílpróf
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Ósk Jóhannesdóttir forstöðumaður. rakel.osk.johannesdottir@reykjavik.is S: 664-0454